Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. maí 2020

1127/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraþjálfara og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um sjúkraþjálfara sem hafa starfsleyfi og sérfræðileyfi landlæknis skv. 2. og 5. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig sjúkraþjálfara og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa MS-prófi í sjúkraþjálfun frá námsbraut í sjúkraþjálfun frá læknadeild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi sjúkraþjálfara sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 13. gr.

4. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar námsbrautar í sjúkraþjálfun við læknadeild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun.

5. gr. Sérfræðileyfi.

Rétt til að kalla sig sérfræðing á klínískum sérsviðum sjúkraþjálfunar og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem hefur fengið til þess leyfi landlæknis.

6. gr. Skilyrði fyrir sérfræðileyfi.

Sérfræðileyfi má veita á klínískum sérsviðum sjúkraþjálfunar skv. 7. gr.. Skilyrt er að sérnám umsækjanda sé skilgreint innan þess sérsviðs sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Viðkomandi sérsvið skal standa á traustum fræðilegum grunni og eiga sér samsvörun á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi.

Með klínískum sérsviðum er átt við svið þar sem störf fela í sér bein samskipti við sjúklinga, forvarnir, greiningu og meðferð.

Til að sjúkraþjálfari geti átt rétt á að hljóta sérfræðileyfi skv. 5. gr. skal hann uppfylla eftirtaldar kröfur:

  1. hafa starfsleyfi sem sjúkraþjálfari hér á landi skv. 2. gr. og
  2. hafa lokið að lágmarki 90 ECTS meistaraprófi (MS) eða doktorsprófi (PhD) á viðurkenndu sérsviði innan sjúkraþjálfunar frá viðurkenndum háskóla eða hafa sambærilega menntun og
  3. hafa starfað sem sjúkraþjálfari að loknu prófi skv. 2. tölul. sem svarar til að minnsta kosti tveggja ára í fullu starfi á því sérsviði sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Einnig þarf að sýna fram á að viðkomandi hafi hlotið handleiðslu hjá sjúkraþjálfara með sérfræðileyfi á viðkomandi sérsviði og/eða starfað innan teymis með sérfræðingum á sviðinu. Sé starfshlutfall lægra lengist starfstíminn sem því nemur.

Til frádráttar geta komið allt að tólf mánuðir í fullu starfi ef viðkomandi hefur starfað samhliða doktorsnámi á viðkomandi sérsviði. Heimilt er að tilgreina áherslusvið sem viðkomandi hefur sérhæft sig í innan skilgreindra sérsviða.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis fer skv. 13. gr.

7. gr. Sérsvið.

Sérfræðileyfi má veita á eftirfarandi klínískum sérsviðum sjúkraþjálfunar:

  1. Barnasjúkraþjálfun.
  2. Geðsjúkraþjálfun.
  3. Gjörgæslusjúkraþjálfun.
  4. Greining og meðferð stoðkerfis "Manual therapy".
  5. Heilsugæsla, heilsuefling og vinnuvernd.
  6. Hjartasjúkraþjálfun.
  7. Íþróttasjúkraþjálfun.
  8. Lungnasjúkraþjálfun.
  9. Kvensjúkdóma- og fæðingarsjúkraþjálfun.
  10. Stoðkerfissjúkraþjálfun - bæklun.
  11. Stoðkerfissjúkraþjálfun - gigt.
  12. Taugasjúkraþjálfun.
  13. Öldrunarsjúkraþjálfun.

Heimilt er að tilgreina áherslusvið sem viðkomandi hefur sérhæft sig í innan klínískra sérsviða.

8. gr. Umsókn og umsagnir.

Umsókn um sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun, ásamt gögnum sem staðfesta menntun og starfsreynslu og öðrum nauðsynlegum fylgiskjölum, skal senda til landlæknis.

Áður en sérfræðileyfi er veitt skv. 5. gr. skal landlæknir leita umsagnar námsbrautar í sjúkraþjálfun við læknadeild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um hvort umsækjandi uppfylli skilyrði 6. gr.

Landlækni er heimilt að skipa sérstaka mats- og umsagnarnefnd til að meta umsóknir um sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

IV. KAFLI Réttindi og skyldur.

9. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.

Sjúkraþjálfari skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Sjúkraþjálfara ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Sjúkraþjálfari skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Sjúkraþjálfari ber ábyrgð á þeim forvörnum, ráðgjöf, greiningu og meðferð sem hann veitir.

Sjúkraþjálfari skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

10. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu sjúkraþjálfara gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu sjúkraþjálfara til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Sjúkraþjálfari skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

11. gr. Aðstoðarmenn og nemar.

Sjúkraþjálfari ber ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir hans stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

12. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Sjúkraþjálfari skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir sjúkraþjálfara undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem sjúkraþjálfara ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber sjúkraþjálfara skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu sjúkraþjálfara gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

13. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis og sérfræðileyfis.

Umsækjandi um starfsleyfi sem sjúkraþjálfari skv. 2. gr. og sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun skv. 5. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi og sérfræðileyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem sjúkraþjálfari eða sjúkraþjálfari með sérfræðileyfi, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. 3. gr. og 6. gr. er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af sjúkraþjálfara. Viðeigandi menntastofnun skal skipuleggja prófið í samráði við landlækni.

Starfsleyfi og sérfræðileyfi eru gefin út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

14. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis og sérfræðileyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

15. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um sjúkraþjálfara.

15. gr. a. Gildi eldri leyfa.

Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi sem sjúkraþjálfarar samkvæmt lögum nr. 58/1976, um sjúkraþjálfun, með síðari breytingum, og sérfræðileyfi samkvæmt reglugerðum nr. 318/2001 eða nr. 145/2003, um veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun, með síðari breytingum, halda þeim réttindum óskertum.

16. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1.janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun, nr. 145/2003, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Sjúkraþjálfara, sem við gildistöku reglugerðar þessarar hefur hafið sérnám samkvæmt reglugerð um veitingu sérfræðileyfis í sjúkraþjálfun, nr. 145/2003, er heimilt að haga námi sínu í samræmi við ákvæði hennar. Þeir sem hefja sérnám eftir gildistöku reglugerðar þessarar skulu haga náminu samkvæmt ákvæðum hennar.

Ákvæði til bráðabirgða.

Ákvæði 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar gildir ekki um þá sem hófu fjögurra ára BS-nám í sjúkraþjálfun á námsbraut í sjúkraþjálfun frá læknadeild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands fyrir haustið 2014.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 3. og 6. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2021 að veita þeim starfsleyfi sem lokið hafa prófi í sjúkraþjálfun samkvæmt lögum nr. 58/1976, um sjúkraþjálfun, með síðari breytingum, BS-prófi í sjúkraþjálfun samkvæmt reglugerð nr. 1127/2012 og sérfræðinámi samkvæmt reglugerðum nr. 318/2001 eða nr. 145/2003, um veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun, með síðari breytingum, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.