Velferðarráðuneyti

596/2013

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 333/2011 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. - Brottfallin

1. gr.

Í stað "30. júní 2013" í 2. málsl. 3. gr. kemur: 31. desember 2013.

2. gr.

Í stað "30. júní 2013" í 12. gr. kemur: 31. desember 2013.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkra­tryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig 29. gr., öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 26. júní 2013.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Hrönn Ottósdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica